Back to All Events

Heimsókn í HR - Magnavita

  • Opni Háskólinn í Reykjavík Menntavegur Reykjavík, Reykjavíkurborg, 102 Iceland (map)

Kæru félagskonur

þann 24. október kl. 17 - á sjálfan Kvennafrídaginn mun Dr Guðfinna Sesselja Bjarnadóttir taka á móti félagskonum í Opna háskólanum í HR og segja okkur frá Magnavita náminu.

Tilgangur og markmið Magnavita námsins er að stuðla að fjölgun spennandi og heilbrigðra æviára með því að auka hreysti, virkni og félagsleg tengsl. Guðfinna mun segja okkur frá tilurð námsins og mikilvægi þess að fjárfesta í eigin framtíð og uppgötva nýjar leiðir til að fjölga spennandi og heilbrigðum æviárum.

Vinsamlegast staðfestið mætingu með því að senda skráningu á felaghaskolakvenna@gmail.com

Hlökkum til þess að sjá ykkur sem flestar!

Stjórnin.

Sjá nánar á https://magnavita.is/

Earlier Event: February 20
Háskólakona ársins 2022