Jólafundur Félags háskólakvenna var haldinn á Hótel Holti þann 20. nóvember
Gestir kvöldsins voru rithöfundarnir Þórunn Valdimarsdóttir og Soffía Bjarnadóttir.
Þórunn las úr nýju bókinni sinni Stúlka með fálka og Soffía las úr hinu femíníska skáldverki Áður en ég brjálast – Játningar á miðjunni.
Sérstakar þakkir til gestanna – og til Hótel Holts fyrir ljúffengar veitingar að hætti hússins.
