Miðvikudaginn 28. október fáum við til okkar Önnu Kristínu Blöndal Jóhannesdóttur, hjúkrunarfræðing og doktorsnema í krabbameinshjúkrun við Háskóla Íslands.
Anna Kristín hlaut styrk frá Félagi háskólakvenna fyrr á þessu ári og mun segja frá doktorsrannsókn sinni á lífsgæðum, einkennum og heilsulæsi einstaklinga sem greinst hafa með blóðkrabbamein á Íslandi.
Rannsóknin er hluti af stærra rannsóknarverkefni sem unnið er í samstarfi við Krabbameinsfélag Íslands, Háskóla Íslands og Landspítalann.
Þetta er frábært tækifæri til að kynnast einum af styrkþegum félagsins, fræðast um mikilvægt rannsóknarstarf og sjá hvernig styrkir FHk stuðla að framgangi vísinda og þekkingar.
📍 Staður: Hótel Holt, Reykjavík
📅 Tími: Miðvikudagurinn 28. október kl. 17:00–18:30
✉️ Skráning: felaghaskolakvenna@gmail.com
🥂 Boðið verður upp á móttökudrykk og súkkulaðimola.
Við hvetjum félagskonur til að mæta, styðja við styrkþega félagsins og eiga saman fróðlega og ánægjulega stund!
Hlökkum til að sjá ykkur!
Stjórn Félags háskólakvenna
