Back to All Events

✨ Kraftur reynslunnar – ný tækifæri á nýju lífsskeiði ✨

Félag háskólakvenna býður félagskonum á fyrsta viðburð haustsins, miðvikudaginn 30. september kl. 17:00 á Hótel Holti.

Gestur okkar verður Dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir, rithöfundur og dósent við Háskóla Íslands, sem mun flytja erindið:

„Kraftur reynslunnar – ný tækifæri á nýju lífsskeiði“

Árelía mun fjalla um starfsferil, tilgang, sjálfsmynd og ný tækifæri á ólíkum skeiðum lífsins – og hvernig fjölbreytt reynsla getur orðið dýrmætt veganesti þegar ný tækifæri opnast.

🥂 Við ætlum að eiga notalega síðdegisstund saman á Holtinu með búbblum og konfekti, góðu spjalli og áhugaverðu erindi.

📍 Hótel Holt
📅 Miðvikudagur 30. september
🕔 Kl. 17:00
📩 Skráning: felaghaskolakvenna@gmail.com

Hlökkum til að hefja haustið með ykkur!

Stjórn Félags háskólakvenna