Stjórn Félags háskólakvenna býður til samkomu í tilefni af afhendingu viðurkenningarinnar, Háskólakona ársins 2025.
Afhendingin fer fram á Hótel Holti, Þingholti, þriðjudaginn 18. mars kl. 18:00. Boðið verður upp á léttar veitingar og ljúfa tóna í kjölfar afhendingar.
Við val á Háskólakonu ársins er horft til þess að viðurkenningarhafi hafi lokið háskólanámi, að hún sé brautryðjandi á sínu fagsviði og góð fyrirmynd fyrir aðrar háskólakonur.
Markmið viðurkenningarinnar er að vekja athygli á fjölbreyttum starfsvettvangi háskólakvenna, beina kastljósinu að störfum þeirra og rannsóknum og undirstrika mikilvægt framlag þeirra til samfélagsins. Með viðurkenningunni vill félagið jafnframt fagna áræðni, framgangi og sérstökum árangri háskólakvenna.
Vinsamlegast skráið þátttöku með því að senda tölvupóst á
felaghaskolakvenna@gmail.com
