Back to All Events

Heimsókn í viðskiptadeild Háskóla Íslands – 30. apríl kl. 15:00

Dr. Ásta Dís Óladóttir, deildarforseti Viðskiptadeildar Háskóla Íslands og Háskólakona ársins, býður háskólakonum í heimsókn í Viðskiptadeild HÍ í Gimli, 2. hæð, þann 30. apríl kl. 15:00.

Ásta Dís og Katrín Jakobsdóttir kynna Rannsóknarsetur um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi.

Tilgangur setursins er að efla þekkingu og stuðla að jafnrétti kynjanna í íslensku atvinnulífi, bæði innanlands og á alþjóðavettvangi. https://genderequality.hi.is/

Staður: Viðskiptadeild Háskóla Íslands, Gimli 2. hæð, MBA kaffistofa

Tími: 15:00–16:00

Léttar kaffiveitingar í boði

Skráning: felaghaskolakvenna@gmail.com

Fjölmennum og tökum með okkur vinkonur!

Earlier Event: March 18
Háskólakona ársins 2025