Skýrsla stjórnar
Tilgangur félagsins
Félag háskólakvenna hefur starfað frá árinu 1928 að því að styðja, efla og tengja konur sem lokið hafa háskólanámi. Samkvæmt lögum félagsins er tilgangur þess m.a. að
Að efla kynningu og samvinnu háskólakvenna á Íslandi og vinna að hagsmunamálum þeirra
Að efla skilning og vináttu háskólakvenna um allan heim.
Að hvetja og styðja konur til aukinnar menntunar og vísindastarfa.
Tilgangurinn endurspeglast í þeim viðburðum, tengslanetum og stuðningsverkefnum sem félagið heldur úti ár hvert. Sérstök áhersla hefur verið lögð á að skapa vettvang fyrir fræðslu, samveru og samtal milli kvenna með fjölbreyttan bakgrunn og menntun.
Viðburðir starfsársins
Á starfsárinu 2024–2025 stóð Félag háskólakvenna fyrir röð vel heppnaðra viðburða sem endurspegluðu breidd í þekkingu, reynslu og áhuga félagskvenna. Hér er yfirlit yfir helstu viðburði:
Hádegisfundur á Hótel Holti – 26. september 2024
Á haustfundi félagsins flutti Dr. Margrét Jónsdóttir Njarðvík, spænskufræðingur og rektor Háskólans á Bifröst, erindi undir yfirskriftinni „Býr pílagrímur í okkur öllum?“ Þar fjallaði hún um pílagrímagöngur sem leið til sjálfsþekkingar og innri grósku. Félagskonur nutu góðs félagsskapar og hádegisverðar á Hótel Holti.
Heimsókn til Veðurstofu Íslands – 4. nóvember 2024
Dr. Kristín Jónsdóttir, jarðskjálftafræðingur og Háskólakona ársins 2023, bauð félagskonum í heimsókn til Veðurstofu Íslands. Hún flutti áhugavert erindi um eldfjallavöktun og stjórnun við náttúruhamfarir. Fundargestir fengu tækifæri til að ræða málefni jarðvísinda og öryggisvöktunar í samhengi við samfélagslega ábyrgð.
Jólafundur á Hótel Holti – 5. desember 2024
Á árlegum jólafundi félagsins nutu félagskonur notalegrar samveru, veitinga og menningar. Gestir fundarins voru rithöfundarnir Eva Björg Ægisdóttir og Gerður Kristný Guðjónsdóttir, sem lásu upp úr verkum sínum og áttu samtal við fundargesti. Fundurinn var notalegur og ágætlega sóttur.
Hádegisboð í Listaháskóla Íslands – 9. janúar 2025
Félagið heimsótti Listaháskóla Íslands þar sem Kristín Eysteinsdóttir, rektor Listaháskólans, tók á móti hópnum og kynnti starfsemi háskólans, framtíðarsýn og helstu áskoranir í listnámi. Um var að ræða upplýsandi og lifandi kynningu sem vakti umræður um stöðu lista og skapandi greina í menntakerfinu.
Heimsókn til Íslenskrar erfðagreiningar – 17. mars 2025
Dr. Unnur Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri rannsókna hjá Íslenskri erfðagreiningu og Háskólakona ársins 2022, tók á móti félagskonum og flutti erindi um rannsóknarmódel fyrirtækisins og nýjustu niðurstöður í erfðarannsóknum. Fundargestir skoðuðu rannsóknaraðstöðu og tóku þátt í umræðum um heilbrigðisvísindi og mikilvægi öflugs vísindastarfs.
Rannsóknarstyrkur Félags háskólakvenna
Félagið hefur á undanförnum árum veitt árlegan styrk til kvenna í framhaldsnámi, með það að markmiði að styðja við rannsóknir og efla þátttöku kvenna í vísindastarfi og akademíu. Á yfirstandandi starfsári var hins vegar lögð fram tillaga um að ný stjórn taki sér tíma til að endurskoða fyrirkomulag, tilgang og markmið rannsóknarstyrksins.
Lokaorð stjórnar
Stjórnin lítur yfir starfsárið með ánægju og þakklæti. Viðburðir ársins sköpuðu dýrmætan vettvang fyrir fræðslu, tengslamyndun og samveru.
Félagið hélt áfram að efla tengslanet háskólakvenna, og skapa umhverfi þar sem menning, samtal og uppbygging tengsla fær að þrífast.
Stjórnin þakkar öllum félagskonum fyrir virka þátttöku, jákvætt viðmót og stuðning á liðnu starfsári. Sérstakar þakkir eru færðar þeim sem komu að skipulagi viðburða og þeim samstarfsaðilum sem tóku á móti félaginu af hlýju og fagmennsku.
Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs á nýju starfsári.
Ný stjórn FHK 2025-2026
Í stjórn voru kjörnar Guðmunda Smáradóttir, formaður og Vala Georgsdóttir, varaformaður. Meðstjórnendur eru Vilborg Einarsdóttir, Ásgerður Halldórsdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir. Í varastjórn eru Jónína Ingvadóttir og Linda Vilhjálmsdóttir.
Björg Jónsdóttir gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu og vill stjórn Félags háskólakvenna þakka henni einstakt samstarf og framlag í þágu félagsins.