Dr. Ásta Dís Óladóttir valin Háskólakona ársins 2025.

Félag háskólakvenna hefur valið Dr. Ástu Dís Óladóttur, prófessor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands, Háskólakonu ársins 2025. Ákvörðunin var samhljóða í valnefnd eftir yfirferð á sterkum og fjölbreyttum tilnefningum. Valnefnd skipuðu Ásgerður Halldórsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir og Vala Georgsdóttir

Í umsögn nefndarinnar kemur fram að Ásta Dís hafi með störfum sínum sýnt framúrskarandi leiðtogahæfileika og haft veruleg áhrif á tengsl fræða og atvinnulífs á Íslandi. Hún hafi markvisst unnið að uppbyggingu náms og rannsókna, auk þess að skapa ný tækifæri fyrir nemendur og efla samstarf við fyrirtæki og stofnanir.

Undanfarin fimm ár hefur Ásta Dís stýrt uppbyggingu MBA-náms við Háskóla Íslands og haft frumkvæði að starfsþjálfun innan viðskiptafræðideildar sem nú nær til yfir 70 samstarfsaðila. Á annað hundrað nemenda hefur nýtt sér úrræðið á síðustu árum og margir þeirra fengið starf á sínu sviði í kjölfarið.

Ásta Dís er einnig öflugur fræðimaður og rannsakandi. Hún hefur ritað fjölda vísindagreina og bóka um stjórnun, stefnumótun og þróun sjávarútvegs og fiskeldis. Þá leiðir hún rannsóknir á jöfnum tækifærum kynja til efnahagslegrar þátttöku og ákvarðanatöku í atvinnulífinu.

Árið 2025 stofnaði Ásta Dís Rannsóknasetur um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi sem hefur það markmið að efla þekkingu og stuðla að auknu jafnrétti á vinnumarkaði.

Að lokum kemur fram í umsögn að valnefndar að með starfi sínu hafi Ásta Dís haft áhrif á stefnumótun bæði innan fræðaheims og atvinnulífs og verið öflug fyrirmynd fyrir háskólakonur.

Innilegar hamingjuóskir Ásta Dís.